Óperan 27
Leitað er að fjórum söngvurum:
Tenór, barítón og bass-barítón bregða sér einnig í hlutverk sögumanna og aðstoða Alice við að segja söguna.
Gertrude Stein
Hlutverk Gertrude Stein verður í höndum Írisar Bjarkar Gunnarsdóttur sem einnig er framleiðandi. Sagt hefur verið um Gertrude að hún hafi ekki aðeins safnað listaverkum heldur líka snillingum. Hennar nánustu vinir voru menn á borð við Pablo Picasso, Henri Matisse, Marie Laurencin og Ernest Hemingway.
Gertrude var djörf og óhefðbundin manneskja, þekkt fyrir skarpa greind, sterkar skoðanir og sterka nærveru. Hún átti stóran þátt í að móta móderníska listasenuna í París. Heimili hennar varð samkomustaður listamanna, rithöfunda og hugsuða sem síðar áttu eftir að hafa mikil áhrif á menningu og listir síns tíma.
Alice B. Toklas
Alice gegnir hlutverki sögumanns verksins. Hún leiðir áhorfendur í gegnum söguna frá upphafi til enda, jafnframt því að taka virkan þátt í atburðarásinni sjálfri. Hún á þannig í virku samtali við áhorfendur alla sýninguna.
Alice er skarpsýn, mild og með næmt auga fyrir því sem gerist í kringum hana. Að mörgu leyti er hún hjartað í heimilinu; nærvera hennar stuðlar að hlýju, jafnvægi og kærleiksríku andrúmslofti.
Hlutverkið er skrifað fyrir tiltölulega léttan sópran og laglínurnar endurspegla persónu Alice með björtum og flæðandi laglínum. Alice hefur einstakt lag á að halda mörgum boltum á lofti í einu: hún skemmtir gestum, eldar, skenkir drykki og víkur jafnvel óboðnum gestum á dyr – allt á meðan hún heldur utan um framvindu sögunnar af yfirvegun.
Pablo Picasso
Framúrstefnulegi málarinn Pablo er besti vinur Gertrude. Hann er óöruggur og sækir í hvatningu Gertrude. Hann er reglulegur gestur að heimili þeirra. Þau eru vinir ævilangt þó að vináttan hafi verið stormasöm.
F. Scott Fitzgerald
Amerískur rithöfundur, sækist eftir stuðningi Gertrude og er veislugestur í þriðja þætti.
Leo Stein
Bróðir Gertrude og eru þau samstarfsmenn í málverkasölu. Leo er harður og þrjóskur maður og eru þau systkinin oft ósammála, meðal annars um virði listaverkanna.
Man Ray
Ljósmyndari, veislugestur í þriðja þætti. Hann sækist eftir stuðningi Gertude en hún neitar honum og segir hann muni aldrei verða málari.
Doughboy
Ungur hermaður sem Gertrude vingast við og biður hann um hjálp meðan stríðið geysar.
Ernest Hemingway
Bandaríski rithöfundurinn Ernest Hemingway vingast við Gertrude eftir fyrri heimsstyrjöldina. Hann sækist eftir stuðningi Gertrude og ráðleggingum og vill að hún geri úr honum snilling.
Henri Matisse
Mikill vinur Gertrude og Alice og reglulegur gestur í veislum þeirra. Það var Gertrude sem setti hann á kortið sem stórkostlegur málari þegar hún keypti verkið Femme au Chapeau eftir hann. Hann er afbrýðisamur Picasso þegar myndunum hans er skipt út af veggjum Gertrude.