Óperukompaníið
Óperukompaníið hinÓperan er hluti af verkefni Írisar Bjarkar Gunnarsdóttur nefnt „Hinseginleiki á Óperusviðinu“. Hugmyndin kviknaði þegar hún var bakkalárnemi við Listaháskóla Íslands og tók eftir því hve lítill sýnileiki hinseginleikans er á óperusviði. Hún þráði að sjá og syngja óperur þar sem hinsegin sögur væru í brennidepli. Úr varð rannsókn, styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna, þar sem hún tók saman sýnileika hinsegin sögupersóna í gegnum tímans rás. Í ljós kom að sannarlega eru til tugir af óperum þar sem hinsegin karakterar koma fyrir sögu, en þær eru sjaldan fluttar. Í kjölfarið skrifaði hún bakkalárritgerð um hinsegin konur og trans einstaklinga og síðar meistaraverkefni þar sem hún flutti hluta af óperunni 27.
Nú hefur hún fengið til samstarfs við sig úrvalslistamenn, hlotið styrk úr Sviðslistasjóði og komið á samstarfi við Borgarleikhús. Nú mun fyrsta uppfærsla HinÓperunnar líta dagsins ljós.
hinÓperan hefur það að markmiði að setja upp óperusýningar sem segja sögur hinsegin einstaklinga og þannig auka sýnileika óperusviðinu. Hópurinn mun einnig leitast við að vinna með hinsegin listamönnum og skapa vettvang þar sem raddir þeirra fá að hljóma í íslensku listalífi. Þetta okkar framlag til jafnréttisbaráttu hinsegin einstaklinga.