Henri Matisse

Ópera um ást sem mótaði listina –
og listina sem mótaði tímann.

27 er byggð á sönnum atburðum og fjallar um framúrstefnulega rithöfundinn Gertrude Stein, konu hennar Alice B. Toklas, og líf þeirra í París á fyrri hluta 20. aldar. Sagan hefst stuttu fyrir fyrri heimsstyrjöld og rekur líf Gertrude og Alice gegnum tvenn stríð og friðinn þar á milli. Veggir heimilis þeirra, að 27 Rue de Fleurus, voru þaktir listaverkum frá gólfi til lofts, eftir alla merkustu módernísku listamenn þess tíma. Heimili þeirra varð samkomustaður fyrir róttæka listamenn og hugmyndir.

Snillingar á borð við Pablo Picasso, Henri Matisse og Ernest Hemingway koma við sögu og við fylgjumst með þeim móta heiminn. Verkið er fullt af lífi, húmor, ástríðu og stórbrotnum tónlistaratriðum og býður söngvurum einstakt tækifæri til að túlka fjölbreyttar og eftirminnilegar persónur.

Í 27 er hinseginleikanum gefið rými í gleði og kærleika, samband Gertrude og Alice blómstrar og sjá má skýrt ástina og virðinguna sem ríkir á milli þeirra. Uppfærlan er styrkt af Sviðslistasjóði og er unnin í samstarfi við Borgarleikhús.

Leikstjórn Bjarni Snæbjörnsson Tónlistarstjórn Matthildur Anna Gísladóttir Sviðsmynda- og ljósahönnun Friðþjófur Þorsteinsson Búningahönnun Andri Unnarsson Framleiðsla Íris Björk Gunnarsdóttir Aðstoðarleikstjórn Egill Andrason Sviðshreyfingar Cameron Corbett
Henri Matisse